Xtra stöff
17.08.2006 12:07:53 / hadda

Áminning

http://haddahrund.bloggar.is/

 

eða bara

www.hadda.tk

(það kom bara óvart inn færsla hér þegar ég bloggaði inná minnsirkus)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 15:47:30 / hadda

8 dagar!!!

Jájújú það er að koma að því að maður lætur aftur sjá sig á Eyjunni fögru á eins og einu stk Þjóðhátíð! Aðeins og eingöngu 8 dagar í að stuðið byrji og 7 dagar þar til við munum skrölta yfir hafið með Gubbólfi....

Tilhlökkunin leynir sér ekki, bara alls ekki... og allt er barasta að verða ready!
Ég fór í leiðangur uppá háaloft til að tjékka hvað ég ætti þar sem nothæft væri á svona útihátíðir og þar gróf ég upp í 1. atrennu eitt stk tjald og svefnpoka.... ekki tókst að finna sjógallann en í 2. atrennu, með góðri hjálp mömmu, tókst okkur (með því að snúa öllu við) að finna gripinn! ;) Búin að tjalda tjaldinu.... viðra svefnpokann.... finna tútturnar og stíllin.... svo það eina sem vantar núna (og ætlar að verða hausverkur) er að finna hvað skal drekka sér til vökvunar á hátíðinni miklu! Ég hef nebblea sett mér það takmark að koma aftur heim með BÁÐA skóna mína og SAMA síma og ég fór með út í eyju svo því ber að vanda drykkju-valið vel og haga sér skikkanlega ;)

En eigum við eitthvað að ræða þjóðhátíðarlagið í ár???? Ég er búin að gera margar og ítrekaðar tilraunir til að hlusta á það út í gegn og aldrei hefur mér enn tekist að hlusta á það til enda! Ekki aaaalveg þjóðhátíðarstemning yfir þessu..... jú sleppur kannski á plötuna "Ástarljóð 2006"....
Ertu búin að heyra þetta???
Annars var fyrst búið að publisha link inná dalurinn.is sem átti jafnvel að vera lagið í ár og var ég búin að hlusta á það og sætta mig bara ljómandi vel við það, en neiiiii það var víst bara "tillaga" eftir Bermúda (www.bermuda.is) .... En ég ætla nú alls ekki að grenja meir yfir þessu og hef bara ákveðið að ignora þetta lag, enda sé ég ekki fyrir mér að það verði spilað mikið í dalnum, nema kannski kl. 10 um morguninn þegar verið er að reynað svæfa liðið ;) Nóg er til af öðrum skemmtilegum lögum! ;)

5 vinnudagar í þjóðhátíð!!! (hljómar enn betur!) Ullandi

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 09:38:47 / hadda

Tja-sveimérþá…

Sumarskóla-einkunnir komnar í hús og sumarskóli er bara alls ekki eins slæmur og ég hef blótað honum að vera... :haha:

En að öðru..... þá held ég barasta að ég sé búin að taka 99,98% ákvörðun um að fresta útlandaferðinni fram yfir áramót og skreppa mér bara á þjóðhátíð!! ;) Mig langar svooooo…..

Það er eitthvað blóðugt við að gefa stórfé fyrir aðeins viku í sólinni…. Frekar að stinga af eftir áramót þegar veturinn verður í botni á Íslandi og allt verður orðið rólegt í skúlen…. Sneeeðugt ;)

M.v. veðurfar sumarsins þá væri ekki ólíklegt að stígvél og 66° pollagalli væru góð fjárfesting fyrir verslunarmannahelgina… en nottla aaaldrei að vita nema brakandi sólin sé bara að spara sig fyrir Þjóðhátíð! Hvur veit??

Eina hovedpinen er þá hvort fara skuli með Gubb-ólfi eða taka sénsinn á Flugfélagi Íslands og ber þá að muna að ALLS EKKI setja farangurinn sinn í farangurshólfið, a.m.k. ekki þann fatnað sem nota skal á föstudagskvöldið, því að hanga uppá flugvelli heilt föstudagskvöld er ekki í uppáhaldi hjá mér… og örugglega ekki Ernu heldur ;)

p.s. er að testa nýja síðu..... http://haddahrund.bloggar.is/ = www.hadda.tk


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 10:41:48 / hadda

Heyhójibbíjeyogjibbíjey!

Jabadabadúúú.....! Ég er komin í sumarfrí frá skúlen ;) Loksins er þessum frábæra mánuði lokið, mæli ómögulega með þessu.... en sossum jú ágætt eftirá (vonandi) ;)

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom skríðandi heim úr prófinu um kl. 20 var að kveikja á brand-nýju tölvunni minni sem ég splæsti föstudeginum áður og var búin að slá á puttana á mér að fá ekki að grúska í henni fyrr en að prófi loknu og auðvitað, stabíla ég, stóð við orðin ;) En kannski bara samt vegna þess að lærdómspressan var orðin það gríííðarlega mikil... en það þarf ekki að tilheyra sögunni endelig...

Eftir vinnu í gær vissi ég bara ómögulega hvað ég ætti að gera við sjálfa mig svo ég hélt bara matarboð fyrir bróður minn og famelíu a la Ása; brillíant Mexíkó-súpa og ostakaka og ís í eftirrétt.... Eins góð og mér fannst þessi súpa vera hjá Ásu um daginn þá er ég e-a hluta vegna þannig að þegar ég stend sjálf yfir pottunum og krukka í þessu þá bara hef ég enga lyst á að borða sjálf... verð bara södd á að horfa á allan þennan mat.... :$

Í nótt dreymdi mig að ég hafi verið með Ernu, Rut og e-m á Akureyri, man ekkert spes hvað við vorum að baxa þar.... en erfiðin öll hjá mér snérust um að ég átti flug heim kl. 22 og ég fattaði allt í einu að ég væri á bílnum og gat óóómögulega skilið hann eftir þar sem ég gæti ekki verið bíllaus í bænum.... þetta miklaði ég allt mikið fyrir mér þar sem ég var búin að splæsa á mig RÁNdýrum flugmiða, en að lokum ákvað ég þó að bruna bara í bæinn sem hefur örugglega tekið restina af svefninum og því vaknaði ég bara DAUÐþreytt í morgun eftir að þurfa að einbeita mér að akstrinum frá AK-RVK....
Svindl að dreyma svona orkufreka drauma....! Hvers vegna dreymir mann ekki alltaf bara e-ð afslappandi.... Ég undir pálmatré í útlöndum í braaakandi sól....

Mig langar ekkert meira núna en að skreppast til sólarlanda og nýjasta kreisínessið í mínum haus er að láta mig dreyma um að hoppa á e-ð tilboð um miðjan ágúst og taka lillu sys með í slökun og rolighed (og kannski smáááá versl....) :haha: Spurning um að skipta því út fyrir þjóðhátíð.... mikil pæling í haus þessa dagana...

Hverjir ætla á þjóðhátíð??


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 15:06:59 / hadda

Död

Helgin framundan og hún verður gríííðarlega spennandi.... ... þar sem ég mun reyna að lesa upp heilan kúrs á 2 dögum þar sem lokaprófið er á þriðjudag og vinna þess á milli.... Eeeeen... eftir vinnu í dag þá er ég að farað kaupa 2 stk fartölur, eina fyrir minns og aðra fyrir litla bró.... Kannski ekki beint hentug tímasetning þar sem ég má ekkert fikta í henni um helgina... bara skólabúks.... en kl. 19:30 á þriðjudag mun ég taka gleði mína á ný ;) Sí jú then

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 15:29:11 / hadda

Og ég sem ætlaði....

Á Hallgeirsey.tk 1. helgina í júlí!!! Var búin að verað "agetera" þetta fyrir fólki hvort að allir ætluðu nú ekki örugglega að skunda sér, senda mail á liðið sem er yfir þessu og fá miðann á 3.900 fyrir HR und alles.... en nei! Ég er að fara á fríkin ættarmót þessa helgi og minns sem fer ALDREI á ættarmót... alveg týpískt! :^):^)

En annars er mest lítið að frétta af mér þessa dagana fyrir utan skólastuð....

Fór að vísu á áhugavert kvennakvöld í vinnunni á föstudag þar sem mætt var á svæðið starfsmaður frá Adam og Evu með kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins. Stemningin var alveg skondin þegar hún var að kynna þetta allt og fólk ekki að vita hvernig það átti að vera yfir þessu öllu saman... en svo eftir nokkur bollu-glösin þá fór allt af stað hjá kellunum og það varð svona líka rífandi sala og sölukellan fór skælbrosandi út með næstum tómar töskurnar og fullt rassgat af pjéning! ;)

Í gær var svo nokkuð þétt dagskrá í útskriftarveislum og afmæli en í leti minni fór ég bara í veisluna hjá Löbba-Rúnu ;) Var e-ð fáránlega löt á því.... enda bara læru- og bókhaldshelgi á dagskrá, ekkert spes stuð í því :D

 

En best að halda áfram stuðinu....

 

tjábella


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 22:11:30 / hadda

Geri aðrir betur!!! ;)

Sigmundur Einar efstur á palli í Austurríki

Sigmundur Einar Másson úr GKG sigraði á opna austurríska áhugamótinu í golfi sem lauk í dag en hann lék 54 holur á 5 höggum yfir pari samtals. Keppni var frestað í gær vegna veðurs en í dag lék Sigmundur á 76 höggum eða þremur höggum yfir pari, en hann lék á pari fyrsta daginn, 73 höggum og 75 höggum í gær. "Ég var mjög einbeittur og ætlaði mér að vinna þetta mót," sagði Sigmundur í viðtali við heimasíðu mótsins eftir sigurinn.

http://www.golf.at/news/news.asp?id=1491 - Svo fyrir þá sem eru betri í þýskunni....

Hvílíkur og annar eins SCHNILLING!!

Ég vil óska Simma Austurríkis-golf-meistara enn og aftur innilega til hammó :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 19:59:56 / hadda

Sumarfrí-spumarfrí....

Já rímar illa ég veit.... en í gær fór sumarfríið mitt (svokallaða) fyrir lítið!

Akkuru? Jú... ég byrjaði í sumarskólanum í gær og ég skal ómögulega ljúga að ykkur að þetta sé það skemmtilegasta sem ég gæti varið tíma mínum í! :^)

Hlutabréf, skuldabréf, högnun og öll famelían.... jú gæti alveg verið skemmtilegt á öðrum tíma ársins, en að mæta beint eftir vinnu þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga og skríða inn heima hjá sér kl. 8 á kvöldin gæti alveg orðið overload..... auk þess að ég á eftir að ljúka og skila af mér bókhaldinu sem hangir á öxlunum á mér! vælivæl.... æ nó.... en varð bara e-s staðar að létta á sorgum mínum!

Farið er yfir námsskeiðið á LJÓShraða og nú eftir 2 daga erum við búin með 7 kafla!! 8|8|

En í tilefni að leiðindarfærslu og vælutón ætla ég hér með að gefa öllu þessu DUGLEGA fólki sem er í HMV [Háskólanámi með vinnu] orðu mína! Hvílíkur dugnaður að nenna þessu!

I will survive! :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 01:00:27 / hadda

Ms. Genius!!

Okkar ástkæra alheims-fegurðardrottning fær klárlega og án efa genius-orðuna fyrir frammistöðu sína í kvöld!!

Til hamingju.


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 11:20:21 / hadda

Snjóstormur í maí!!

Hvað er að gjöööörast á þessu landi?!?!?!? :$

Ég lít útum gluggann hjá mér í vinnunni, og minni glögglega á að það er 23. MAÍ (sem þýðir að það eigi að vera komið sumar), og ég sé ekki betur en að það sé snjóstormur!!! Vonandi að þetta sé bara hérna í Borgartúninu.... 8|

Ég hlakka til að komast í Kópavoginn á eftir og fara í sólbað!! :haha:

"Það er gott að búa í Kópavogi.... " eins og e-r glöggur maður sagði...


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 17:44:25 / hadda

Auglýsingar

Já ég hef verið spurð að því hvort að þetta vesældar blogg mitt sé orðið að auglýsingasíðu og jú... maður a.m.k. reynir að redda því sem reddast getur og sem betur fer tókst að redda bankavinnunni svo allt í gúddí...

En það sem er að fréttaf mér er að ég kláraði prófin á fimmtudag, djammaði af mér hausinn á föstudag, var þunn á laugardag, djammaði samt aftur á laugardagskvöldið en bílandi þó þar sem áfengi var ekki besti vinur minn.... , fór á Víking-Fylki á sunnudag sem fór illa og byrjaði svo að vinna á mánudagsmorgun ;)

Ég geri ekki ráð fyrir að þetta blogg mitt verði mjög öflugt í sumar, en sjáum hvað setur....

En erum við að tala um Eurovision-djamm á fimmtudag or laugardag, eða bæði betra?? ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 13:30:00 / hadda

Vantar þig vinnu???

Ertu svolítið sein/n á því að ná þér í vinnu fyrir sumarið??

Alltígúddí! Því ég veit um vinnu fyrir duglegan og samviskusaman einstakling!

Um er að ræða vinnu í banka.... svo ef þú hefur áhuga þá kontaktaðu mig með kommenti, email (haddah@ru.is) or by phone 693-6248!!

Einstakt djobb ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 18:26:27 / hadda

Isspiss...

Greinilega lítið um að fólk viti um íbúð á leigu..... okiþá

Prófatíminn snarfjörugi stendur yfir eins og er... búin með 1 og samt bara 2 eftir ;) Lúxuspían ég! Aðeins 6 dagar í að ég mun taka gleði mína á ný og sletta ærlega úr klaufunum! ... eða a.m.k. þar til ég byrja aftur í skólanum 30. maí! Hvaða skarphéðni datt í hug að hafa skóla á sumrin??? Well... ég ætla a.m.k að nýta mér það til að létta á komandi önn, ágætt svona eftirá kannski ;)

En já, þetta verður mjög stutt og innantómt í dag, þar sem ég er grilled in the brain.....

Ert þú MySpace-nörd??
Tjékk þiss át og sænaðu þig upp! :haha:

Kkv. Læristubbur


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 10:22:43 / hadda

S.O.S

Hey þú!!

Veistu um íbúð til leigu á höfuðborgarsvæðinu??

Ungu, reyklausu, fyrirmyndarpari með lítið barn bráðvantar íbúð sem allra fyrst á höfuðborgarsvæðinu!

Ef þú veist um e-ð þá sendu mér mail (haddah@ru.is), hringdu/sendu sms í síma 693-6248 eða kommentaðu!

Þank jú ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8